29.4.2009 | 14:15
Tilheyrir fóstureyðing starfi iðnaðarmannsins ?
Ég er mest hissa hversu fáir hafa haft á orði hugmyndafræðina að baki auglýsingunni.
Samtök iðnaðarins eru að leggja það að jöfnu að fara í fóstureyðingu og láta skipta um bremsuklossa í bílnum. Auglýsingin/myndin sjálf er viðbjóðslega ljót - en þar fyrir utan - hvað eru menn eiginlega að pæla á auglýsingastofunni og SI ?
Að fóstureyðingar séu einhverskonar sjálfsagt viðhald á líkama konu ?
Fádæma sóðaleg auglýsing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þær hafa verið margar súrar, auglýsingarnar upp á síðkastið. Hafa orðið kynslóðaskipti hjá auglýsingastofunum og þarf að kenna ungunum betri siðfræði ?
Erla Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 14:24
Þetta er ósmekkleg auglýsing, sem "stuðar" á kolröngum forsendum.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 29.4.2009 kl. 14:33
Ætli menn hafi ekki verið að reyna að sýna fram á það að menn myndu aldrei leita til einhvers skottulæknis með líkama sinn og ættu kannski að hugsa á sama hátt um húsið sitt eða bílinn sinn... Þannig tók ég þessu! En allir verða móðgaðir einmitt já af kolröngum ástæðum.
Óli Ágúst (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 17:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.